Mjög góð aðstaða er til fuglaskoðunar á Borgarfirði. Fuglaskoðunarhús er við gömlu bryggjuna í þorpinu. Mjög góð aðstaða til að fylgjast með fuglunum í fjörunni. Þar er m.a. fuglabók og sjónaukar. Hér hafa sést yfir 20 fuglategundir í einu. Við smábátahöfnina við Hafnarhólma eru tveir útsýnispallar með einstaklega góðu aðgengið að ritu- og lundabyggð. Sú aðstaða er tvímælalaust með því albesta sem þekkist á landinu – jafnvel í heiminum. Þar er hægt að fylgjast með ritu á hreiðrum og með lundanum við holur sínar. Mest er af honum á morgnanna og á kvöldin en yfir daginn flýgur hann á sjó út í ætisleit. Takmarkað aðgengi er að lundabyggðinni á varptímanum í júní og júlí. Talið er að milli 10 til 15 þúsund lundapör verpi í Hafnarhólma. Lundinn hverfur yfirleitt allur samtímis rétt fyrir miðjan ágúst. Í Hólmanum er einnig talsvert æðarvarp og einnig eru þar um 100 fýlshreiður. Nánari upplýsingar.
|